Ókei.. ef þetta er ekki leiðinlegasta helgi sem ég hef
upplifað þá er ekki til neitt sem heitir leiðinleg helgi!!!
Föstudagur: Var í fríi og þar sem það var þessi glampandi
sól ætlaði ég að reyna að nýta daginn í að tana mig pínu
Byrjaði
samt á því að fara til tannréttingarlæknis, búin að bíða eftir
þessum tíma í hálft ár.. sváfum pínu yfir okkur og þurftum að
drullast útá stofuna, sem var btw í Kópavogi, á 5 mínútum! jæja..
gekk allt einsog í sögu þangað til að á bílastæðinu sjálfu
kemur maður á hvítum bíl og bakkar á okkur. Hann bara hlííítur að
hafa verið minnstakosti 70% sjónskertur aþþí það bakkar enginn
á skærgulan púströrslausan bíl sem brakar í þegar maður beygir
til vinstri!! Jæja.. ekki nóg með það heldur fékk ég að vita það að
ég væri með aaafar stóran fæðingargalla í tönnunum sem tæki 3 ár og
nokkurhundruðþúsund að laga.. kommon.. slepp ég ekki alveg með 2 og
hálft? Nei elskan mín.. það er það mikið að þér að það tæki aldrei
minna en 3 ár!!! aaaaaaaaaaaa...semsagt þarf ég að hafa riiisastóra
járnbrautarteina uppí kjaftinum á mér í tvöoghálfttilþrjúár!
Djöfull verð ég forljótt breisfeis með gleraugu OG
teina!!! Váá ætla ég að lita hárið á mér rautt haha
.. Síðan
þurfti ég að passa 2 djúpsteiktustu börn sem til eru á
jörðinni plús tvær gelgjur það sem eftir var dagsins.. semsagt
ömurlegur dagur
Laugardagur: Tók Móu, Steinunni Evu og tvær vinkonur hennar með
í Nauthólsvíkina.. vaaá þær eru allar jafn steiktar í hausnum.
Vorum komin um hálf 3 þangað vegna steikleika þeirra.. pirr..
Allavega drullukalt þar og tóruðum bara í klukkutíma vegna kalds
vinds! Þá tók ég Móu með mér í sund. Það er þannig með taugarnar í
Móeiði að það er ekki til neinn meðal skali sem þær fara eftir..
þær eru annaðhvort á sterkustu blásýru sem þú getur ímyndað þér og
hún svarar ekki einu einasta bofsi sem maður reynir að
koma fyrir inní hausnum á henni, eða þá með sjöþúsund feitar
adrenalínsprengjur sem springa í hverri einustu taug í líkamanum
hennar þannig að maður hefur ekki við því að fylgjast með henni í 2
sek.! Í sundinu var ástandið þetta síðarnefnda.. semsagt
ekki mikil afslöppun þar á ferð.. enda stoppuðum við bara
stutt! Fór heim og fékk gesti.. ætlaði með þeim í bíó og láta
gelgjurnar 3 passa. Sagði þeim að vera komnar fyrir hálf 8 heim úr
strætórúntinum sem þær ætluðu að taka.. djös nöllar! Jæja.. klukkan
orðin korteríátta og ég segi þeim að fara bara í bíó og ég kæmi á
eftir þegar pussurnar kæmu. Korter yfir átta er ég búin að missa af
myndinni og orðin freeekar brjáluð! Klukkan verður korter í níu og
síminn hringir.. Steinunn Eva föst í rassgati og hinar 2 á
Hlemmi...símalausar!! Ég þurfti semsagt að keyra, á mínu eigin
bensíni, útum allan fokkings bæ eftir 3 síma- og heilalausum
gelgjum sem voru búnar að týna sólgleraugum og veski í sitthvorum
vagninum! djöfull hefði ég getað kúkað í mig úr pirringi!!! Já..
semsagt missti ég af Madagaskar í bíói með Hrafnhildi og Jói til
þess að passa þrjár 14 ára sveitalúða sem þóttust kunna á nýja
strætókerfið!! Svo núna nenni ég ekki útá vídjóleigu og þarf þá
bara að finna mér eitthvað annað að gera, heima.. af því að ég er
víst að passa 4 smábörn!! hehe ég gat nú samt hlegið áðan þegar
Móeiður kom inn hágrenjandi með riiiisavaxna fjólubláa kúlu á
enninu, nýbúin að skokka á fellihýsið
aaaa.. fyndið
Vonandi áttuð þið góða helgi.. mín er ónýt!
Næsta helgi fer síðan í að vinna og vinna...Í Borganesi
reyndar...Þannig að ég missi af feitu hasspartýi þar sem
planið er að grilla hass og pulsur og sötra lite afganga
Hvað
gerir maður ekki fyrir peninginn? jæja...þetta er fyrir löngu orðið
leiðinlegt blogg.. ég segi bara bæjó og skemmtiði ykkur vel um
Verslunarmannahelgina
Síðan til að toppa sjálfsvorkunina þá eru aaallir að fara til
útlanda nema ég! haha.. sjiiitt rífðu þig uppúr þessu apinn
þinn!!