The monkeyass!

*ROOOOOOP*

30.01.2005 21:22:09 / Aparass

Ástarpungar og nóatínspizzur....múúaaah;D

Gvööööð...ég er að missa mig úr ástarpungum!! Ég er umkringd af fullt af sætum súkkulaðigaurum sem láta mig ekki í friði!! Hvernig kemst maður útúr svoleiðis flækju? Við erum sko að tala um 50 herra Ísland eða eikkvað!! ég er að verða beeelöð útafessu...Ég meina ekki bað ég um að allir fallegu gaurarnir eltist við mig...omg!!50 missed kall á dag!! Hvenær ætlar þessu að linna?!?:evil:

En allavega var allt brjálað að gera á föstudagskvöldinu...feitt 2 manna hasspartý með pussustrýði og öllu tilheyrandi:lol: Bananasplittið stóð fyrir sínu og einnig prumpufílan sem er ennþá í sænginni minni!! hahahah...sjitt...þessu verður að linna Heiðrún:D Svo skelltí ég mér í ökutíma og rúntaði Laugarveginn með ökukennaranum:P Jahh....svali!!! Kvöldið var síðan tekið með trompi...Ég og Hrabba grönduðum 7000 tonnum af hráum nóatúnspizzum og saltstöngum:haha: Svo spjölluðum við um allt frá toppi til táar haha...hljóðið manstu....múúúúúaaaaaah.....Hahahahaha:haha: Toy Story 2 er snilldarmynd...á puttanum? Ertu alveg innpakkaður?:D  Svo vorum við reknar útí Kringlu aþþí sveitalúðarnir (Hafdís og Kristín) komu 2 tímum fyrir opnun;) Allt að gerast í kartöflumálonum á þeim bæ...daddara!! Gaaa sætu;) En eins og ég segi...ég á nóg með mína 50 herra Ísland gaura!! hjehje...ég verð að farað lesa Snorra-Eddu...próf i morgen!!:S Sé ykkur snáða...bæbæ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.01.2005 15:35:54 / Aparass

Óheppni óheppni:P

Sjitt!! er hægt að vera meira óheppin á einum föstudegi?! Sko...um morguninn missti ég af rútunni til Reykjavíkur og þurfti þar af leiðandi að skrópa í 2 tímum í skólanum!! En jæja...það bjargaðist fyrir horn og ég tók bara hálf tíu rútuna;) Síðan fór ég aðeins í kringluna þar sem ég var í 2 tíma gati, og var maður ekki bara stoppaður af blaðamönnum sem vildu ENDILEGA fá að spurja mig spurningu vikunnar DV!! haha...nú er barað fylgjast bara með í DV...ég gæti verið þar að tjá mig um vísareikninginn minn og hvað ég eyddi miklu í jólagjafir;) Já...síðan keypti ég mér skyr.is og byrjaði barað labba útí skóla!! En ég var eikkvað so svakalega mikið að hugsa að ég henti skeiðinni í ruslið!! Ohh...en mín bjargaði sér þó með því að borða jógúrtið bara með puttonum:D Svo fór ég bara í skólann og það gekk sona tæpitungulaust....nema það að ég missteig mig í miðjum matssalnum í hádeginu og var næstum því nottin á Harry Potter:haha: hahaha... Já síðan ætlaði ég sko ekki að missa af strætóinum og hljóp útí strætóskýli!...heppnin var með mér og ég náði strætóinum;) Eitthvað fannst mér þetta þó skrítin leið sem kagglinn fór!! Undraði ég mig á því af hverju vagninn stoppaði í mjóddinni...þetta hlaut bara að vera einhver ný leið eða eikkvað!! Neinei...ég var ekkert í réttum strætó...þessi fór einhvert uppí Seljahverfi en ekki Árbæinn!! OOhhhh....en jæja...ég fór þá bara einn Seljahverfisrúnt í strætó og fór aftur úr hjá Kringlunni;) Ákvað að bíða bara þar þangað til að Hjördís kæmi og labbaði bara um og keypti mér inneign! Skrapaði af henni á röltinu og eins og í fyrra skiptið var ég eikkvað svakalegt að hugsa og henti inneigninni í ruslið!!! SJITT....hvað geriri maður þá? Ég var ekki alveg að sætta mig við það að síðasti peningurinn sem ég var með á mér hefði farið í inneign sem var núna í RUSLINU!!! Ég leit sposk á svipinn í kringum mig og kannaði aðstæðurnar vel og vandlega;) Síðan ákvað ég að ná í helvítis inneignina....svo...neeeei....ég get ekki farið að kafa í einhverju ógeði bara til að ná í einhvern pappírssnepil sem ég hafði asnast til að henda!! En ég varð að geta ringt í Hjördísi til að segja henni hvar hún ætti að hitta mig!! Síðan komst ég að endanlegri niðurstöðu og kafaði eftir blessaðri inneigninni....það var MJÖG geðslegt að sulla í kaffi og ísdollum á botninum á þessari vibbaruslatunnu;) Og ég var so heppin að hún var næstum tóm, þannig að eg þurfti að kafa ennþá lengra!! En allt kom fyrir ekki...mér var ekki ætlað að finna inneingina!! Vá horfðu allir á mig:haha: Ekki kannski alveg sú athygli sem maður vildi:P En ég sætti mig þó við það og fór inná klósett og þreif allt kaffið og örugglega ísbréf sem einhver gamall kall hafði snýtt sér í8|;) Haha...Síðan fann ég Hjördísi og við brunuðum heim og borðuðum gjeggjaða pepperónípizzu:haha: Svo komu Heiðrún og Hafdís og við fórum í bíó á Saw og drulluðum á okkur úr hræðslu:P Svaka stuð þar á ferð og leigubílsstjórinn alveg að flippa úr perraskap!! Ojbarasta...En gaman að hafa ykkur stelpur;) Núna er ég farin að borða og síðan horfa á leikinn:D Babæ;)


» 15 hafa sagt sína skoðun

16.01.2005 00:33:18 / Aparass

Einum Arsenal aðdáanda fleirri;D

Já syndum í pollum og rennum okkur á rassgatið!! Þessi helgi er búin að vera einn stór marblettur á rassgatinu á fólki:P Ekki mér samt...Kemur sér vel að vera með stórann botn:lol:

Allavega á föstudagskvöldið gengum við Hrafnhildur saman í sjóinn....eða pollinn, hvað sem það nú var...á leið okkar í kringluna;) Eða á hlemm fyrst aþþí við sáum ekkert útum gluggann...fórum nokkrum stoppum of langt!! Síðan rúntuðum við nokkrar ferðir í gegnum kringluna og sáum nokkur útigangsbörn hnerra á símann sinn!! aumingjans skinnið....Næst lá leiðin í smáralindina og fengum okkur að borða feitustu pizzu í gjörvallri Evrópu!! Rúlluðum síðan kófsveittar af pizzufitu inní taxa sem lengdi sér leiðina og tók einn rúnt í kringum borgina áður en hann loksins skilaði okkur út!! Hata soleis leigubílsstjóra...:evil: Á labbinu heim af vídjóleigunni undruðum við okkur á hóp verulega óþroskaðra ungra pilta sem var að kveikja í jólatré og henda því inní strætóskýli... pældum við lengi í hvað gera ætti í ástandi sem þessu, en ákváðum að gerast meðsek og gengum burt í hægindum okkar!! Síðan fórum við heim horfðum á hálfa dvd mynd og sofnuðum svo...Öflugar:D....eða var það bara ég sem sofnaði:$!!;)

Einhver hamagangur á hóli var hins vegar hinum meginn við fjallið!! Sumir helltu í aðra og aðrir urðu ruglaðir og er endirinn mjög óljós ennþá....veit satt að segja ekki alla söguna þrátt fyrir uppfærsluna símleiðis í öll þau skipti í nótt:P Haha...snilld:D

MERKISTÍÐINDI!!! mér tókst að fá litla frænda minn til að halda með Arsenal...en faðir hans var búinn að berja því inní greyið drenginn að halda með Liverpool:haha: Ég held með sama liði og Sunna;) Ahahaha....nú verð ég aldrei aftur boðið í barnaafmæli á því heimili!! ég verð ávallt vonda frænkan í augum föður hans...Nei við verðum að fá einhvern annan til að passa þig elskan, Sunna getur ekki komið í kvöld...reyndar aldrei...hún er flutt til Kína!! hahahaha...:D Ég elska hann!! ég er að hafa áhrif á líf hans...framtíð í þessu öllu saman;) Luuuv it....

En nóg af bulli í bili...gulli í gili!! haha...ný vísa;) Ég kveð áður en ég kemst í svefngalsa...það er hættulegt:P Bæbb;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.01.2005 22:53:48 / Aparass

Hugsaðu til mín...þá veistu svarið!!

Hæhæ...Hvað segiði nú, litlu asnaprikin mín?;) Gleðilegt ár og takk fyrir allar góðu samverustundirnar á því liðna...Vonandi verða þær ekki færri á því nýja;) Þá dey ég!!Er ekki bara gaman að byrja í skólanum aftur? Þið hafið gott af því þarna leeetingjar!!:P En allavega er ég, artífartý og bóhem típan sjálf, byrjuð í hinum tónlistarsinnaða skóla austan Kringlunnar! Það er þannig með þann skóla, að maður þarf að rýna verulega inn í hópinn til að sjá manneskju í diesel gallabuxum eða með gel í hárinu!! Neinei...þar þykir bara svalt að vera með afró í 90 fermetra radíus ÚT Í LOFTIÐ og djamma með ipodinn sinn!!! haha:D Þetta þótti mér VERULEGA einstakt tilfelli...kannski ekki furðulegt...maður er nú einu sinni fæddur og uppalin frá A-Ö á þessum líka svaðalega hnakkastað þar sem er glápt á fólk nema það sé klippt beint útúr tískublaði!! Ég viðurkenni þó að öfgarnar eru alveg í hámarki á Selfossi varðandi þessi mál og vil ég alls ekki skemma sálir MH-inga með bulli mínu! Haha....sjitt...nú er bara að fara að fitta inní hópinn og fá sér svartan varalit og skikkju...ÞAÐ er svalt8) Nei mér líst bara vel á það að vera bara í mínum fötum með minn ósjálfstæða stíl...hvort sem það sjáist á mér að ég sé frá Selfossi eður ei!!;) Jahh...en ef ég mætti ráða væri ég bara að fara að byrja í Fsu á morgun...fíbblast með ykkur og gera alla brjálaða með látonum í okkur;) hjehje:klikk:

Já...ég er flutt inn þótt húsið sé ekki næstum því eins og það á eftir að vera! Næst á dagskrá er að mála og velja parket í herbergið og gera eikkvað kreisí við það;) Það er sko stærra en eldhúsið;) Hohoho...ég sko flutti með þeim með því skilyrði að ég fengi stærsta herbergið;)...Partý partý:D Svo er maður með sérinngang8) SVALI...hahaha....sjitt er ég að missa mig í kúlinu!!

Haha...ég var að finna eina manneskju sem er meiri trukkur en ég...það er sko allrasvaðalegasti trukkur sem ég hef kynnst í 6 ára barni?!! Hún leynir sko á sér með ljósa englahárið sitt og bláu saklausu augun! Ég er sko að tala um að ropa hærra en allt við matarborðið, ( ég er alltaf að spurja sjálfa mig hvaðan hún hefur það) syngja: í skólanum í skólanum er leiðilegt að vera....ég meina þegar ég var 6 ára fannst mér gaman í skólanum og datt ekki í hug að sygja sona vísur!! Svo kom hún labbandi til mín í dag og sagði: Sunna, ég þori að veðja að ég geti unnið þig í sjómanni!! ég bara:o WHA?!?!?! Og þorði nottla ekkert að segja á móti...geggt hrædd um að hún mundi lemja mig í hönk...

Sjitt fær maður íslensk dægurlög á heilann þegar mar er að telja vörur í Byko allan liðlangan daginn og hlusta á útvarp sögu...ég vaknaði sko syngjandi: Hugsaðu til míííín, þá veistu svaaaarið!! Roooosa gaman;) En annars var þetta yndislegasta helgi sem ég hef upplifað lengi....takk fyrir það!! ég er so heppin að eiga ykkur...veit ekki hvað ég gerði án ykkar!! Væmnin alveg hreint að brjótast út í manni....haha;) ég er farin núna að sofa úr mér þetta skrifæði sem ég er komin í núna....bæbæ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Gamlar myndir