The monkeyass!

*ROOOOOOP*

17.04.2009 22:02:20 / Aparass

Hæjó

Já góða kveldið sætu þið. Ég sakna ykkar. Ég elska ykkur. Ég sakna líka greys anatomy. En ég elska mömmu og pabba mest. Sorry þið hin.

Þetta átti ekki að vera sakniblogg samt...þetta vera sumarblogg jaa. af því að sumarið er aaalveg að koma get ég sagt ykkur. Fékk meirasegja smá tan í dag=) Sumardagurinn fyrsti er ekki haldinn hátíðlegur hérna í Danmerku, sem er helvíti skítt því ef þeir bara vissu hvað það er gaman á sumardaginn fyrsta sko! En ég ætla að halda uppá hann bara samt.

Eníveis...Við litla fjöllan hérna vorum í sumarbústað á norður Jótlandi fyrstu vikuna í apríl. Rosa huggulegt og gaman, með baðlandi og úti-líkamsrækt. Fengum Emil Andra lánaðan frá Íslandi til að koma með okkur og það fannst okkur sko ekki leiðinlegt, hefði nú alveg viljað hafa hann lengur hérna hjá mér=) 



Vinnan gengur fínt. Hún er bara pínku smá boring, en manni leiðist aldrei og tíminn þarna líður frekar hratt. Ég er nú samt á því að þetta sé ekki framtíðarstarfið mitt. En það er fínt að vera með eitthvað hérna í sumar. Því sumrin eru jú skemmtilegust í Danmörku=)(samt líka landsvirkjun)

Ég er ennþá með teinadraslið. Er að pæla í að hóta tannsanum með vænum skammti af tveggja daga gamalli kryddsíld í járninu í næsta tíma. Einhver með betri hugmynd?

Var að keppa í fótbolta á þriðjudaginn. Unnum 1-0 takk fyrir túkall=) Þarf að fara að koma mér í form svo ég deyji ekki aftur eftir að hafa spilað heilan leik. Svo nú er það bara út að hlaupa á hverjum degi. Eða þúst svona næstum...

Sorry með hrátt og leiðinlegt blogg en ég verð bara að fara að sofa. Morgunvakt og tan á morgun=) Sakna ykkar allra súberdúber mikið. Pant hitta ykkur öll þegar ég kem í heimsókn=* 



Ein svona svo þið gleymið mér ekki alveg!!  BLESSÓ


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.03.2009 22:40:44 / Aparass

jæja nú jæja

Jæjaaa það er svona smotterí búið að ganga á síðan ég bloggaði seinast...

♥ Ég fékk loksins vinnu stuttu eftir. Mér til mikillar gleði var þetta hin ágætasta vinna, fínt fólk að vinna með mér og krakkarnir algjörar dúllur. Þetta er semsagt vistun fyrir þroskaheft börn.
♥ Fékk að vita að það eru bara 2-3 mánuðir eftir af þessum ævalöngu tannréttingum sem ég er búin að þurfa að þola. Það voru miklar gleðifréttir og ég er ekki frá því að það hafi heyrst jóðl til næsta bæjar sökum gleði.
♥ Ég átt mjög dramantískt móment fyrir framan spegilinn þegar ég reyndi að troða mér í jólakjólinn minn.. fór alltíeinu að hata ástirnar mínar, björgunarhringina!
♥ Kláraði alla gossip girl, one tree hill og 90210 þætti sem komnir eru út...nú hef ég ekkert að horfa á! Spurning að fara í þetta greys anatomy? kannski bara
♥ Byrjaði í fótbolta og kynntist því hvað ég bý í sjúkt litlum bæ þar sem allir þekkja alla og gott betur en það. Fengum okkur bjór eftir fyrstu æfinguna og það var bara setið og slúðrað um allt og alla...þar sem ég þekkti ekki 1 af þessum sem slúðrað var um, sá ég bara um bjórinn=P
♥ Síðan tók ég uppá því að sækja um eitthvað nám fyrir haustið ef mig skyldi langa að læra víðar hér. Það kostaði mig ekki einungis blóð, svita og tár, heldur einnig margar andvökunæturnar og prentarablekið. Tala nú ekki um A4 umslögin. Ég get bara sagt að ég er aaansi fegin að þetta er yfirstaðið. 
♥ Fékk um daginn vott af heimþrá þar sem mér fannst alltíeinu ég vera að missa af öllu. Langar svo að kíkja heim í viku og knúsa hundinn minn, systurnar mínar og gamla settið, heimsækja nýja fjölskyldumeðliminn í Austurgerðinni og knúsa alla grísina mína þar, sofa sjö nætur í rúminu mínu, knúsa vinina mína, borða dominos pizzu og kaupa Nóa Síríus og flytja það með mér hingað. Maður verður bara að lifa í draumi og vona að maður fái ágætis ávísun einhver mánaðarmótin á næstunni=)
♥ Það er nú samt ansi mikið að hlakka til núna á næstunni svo ekki sit ég við leiðan keip gott fólk. Erum að fara í bústað á norðurjótlandi fyrstu vikuna í apríl þar sem er gjörsamlega allt til staðar. Baðland, íþróttahús, hægt að fara á hestbak, spa þar sem hægt er að fá nudd, veitingastaðir og margt fleira. Það verður ýkt kósý og síðan er aktiv fest, svona einhverskonar slútt hjá íþróttaliðunum hérna í Ilskov helgina eftir og það er víst hellings stuð líka. Síðan er það bara maí og þá koma gestir:D vúbbííí
♥ Já...ég fékk líka hleðslutækið af myndavélinni minni fyrir ekki svo löngu svo ég er ekki búin að taka neitt mikið af myndum. En ég fer að bæta úr því á næstunni.
♥ Núna ætla ég hinsvegar að skella mér í bælið því ég er að leka hérna...gónó elskur=*


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.02.2009 14:52:03 / Aparass

Mánudagur

Jæja kominn tími á blogg!
Allt gott að frétta héðan.. átti yndislegan afmælisdag í gær með fjölskyldunni, eða allavega hluta hennar hehe. Fengum íslenskt lambakjöt með brúnuðum kartöflum og brúnsósu, sjúkklaðiköku, pönnukökur með rjóma og eitthvað svona gúmmélaði híhí. Og svo fékk ég líka pakka:D fór sko södd og sæl að sofa get ég sagt ykkur!!

Annars er ég búin að vera á flakkinu síðustu 2 helgar til Odense og til baka. Við Gummi fórum að hjálpa Hadda frænda og Bjarneyju að flytja á föstudaginn. Rosa fín nýja íbúðin þeirra. Ég hlakka ekkert smá til að fá mína eigin íbúð og geta bara innrétt hana einsog ég vill! Síðustu helgi heimsótti ég hina yndislegu Heiðrúnu og við höfðum það rosa kósý og höfðum sko um margt að spjalla, enda ekki búnar að hittast í hálft ár! Spiluðum svo og éttum pizzu með Sigurjóni og Aldísi um kvöldið. Síðan á laugardeginum fórum við í smá skoðunarleiðangur í H.C Andersens hverfið og að sjálfsögðu fengum við mynd af okkur með gamla;)



Ég fór með Mörthu frænku í vinnuna hennar í vikunni til að sjá hvernig svona ummönnunarstarf væri, en ég er einmitt búin að sækja um á sirka 10 elliheimilum. Semsagt þá vinnur hún með þroskaheft aldrað fólk. Hljómaði alls ekki illa í mínum eyrum enda langaði mig að prófa e-ð í þá áttina, var reyndar búin að hugsa mér bara elliheimili en þar fer eiginlega það sama fram fyrir utan að fólkið er þroskaheft. Ég komst allavega að því að ég er bara ekki fædd í að annast fullorðið fólk:S þannig er nú það

Fyrir nokkrum dögum síðan átti ég ekkert smá drama móment á leiðinni heim úr skólanum. Var nýbúin að fylla ipodinn minn af píkupoppi og grenjulögum og það var svona bíómyndalegur úði og e-ð...síðan labba ég þarna framhjá 2 konum sem eru greinilega búnar að leggja bílunum sínum til að stoppa umferðina úr einni áttinni...uuh óþægilegt, falck bíll þarna stopp og krumpað hjól og sjúkramenn að láta hjólreiðamanninn uppá sjúrabörur og beisla hann niður og svo var þarna hvítt lak og ég fékk hreinlega tár í augun! Og allir í kring voru þarna að hjálpa til við að stoppa umferðina og vegfarendur rosa þolinmóðir. Þetta er eitthvað sem maður myndi ekki sjá á Íslandi. Þar myndi fólkið reyna að troðast framhjá með frekju og helst keyra mjög hægt til að forvitnast og sníkjast um slysið! æj þetta kom bara smá við brjóstið á mér...eða hvernig sem maður orðar þetta

Eeeníveeeis ég er farin að gera eitthvað að viti! bless í bili

ps. ég er að fara í atvinnuviðtal á fimmtudaginn vúhúú:D


» 10 hafa sagt sína skoðun

21.01.2009 23:37:59 / Aparass

Blogg segiði? haha mér finnst soldið kjánalegt að skrifa blogg, líka eftir þjóðhátíð.. Steinuuuunn ertað bloggaaa? hahaha
Jæja.. ég hef nú ekki mikið að segja frá. Ég er ekki komin með vinnu, enda ekki búin að fara með cv-ið mitt eitt né neitt en það gerist allt í næstu viku. Ég hef skólann á meðan, hann er fínn fyrir utan það að ég þarf að vakna kl 6 á morgnanna til að taka strætó til Herning og bíða á illa stinkandi rútubílastöðinni í næstum hálftíma eftir áframkeyrandi bus. Ójá illa stinkandi...danir reykja mikið! þarna er líka kiosk og þar inni er bara reykt einsog enginn sé morgundagurinn í kringum allan matinn. Ullabjakk! Ég hlakka mjög til að geta farið að vinna. Það verður næs að fá útborgað í dönskum krónum en þangað til verð ég að hugsa í íslenskum og það er fokking ömurlegt þar sem gengið er ennþá 23 krónur svo allt þetta ódýra er ekki rass ódýrt.
Amma á hund, Dixie, sem er frekar fyndin. Smá geltipúki. Þegar við tölum um að hún þurfi að fara út að viðra sig þá spurjum við hana hvort hún þurfi að fara út að gelta. Að sjálfsögðu fáum við svar.
Ég er komin með danska kennitölu, það er eiginlega ekki hægt að lifa hérna án þess að vera komin með svoleiðis. Þurfti danska kennitölu fyrir skólann, bankareikninginn og þar af leiðandi nýja símann sem ég þarf að kaupa því gamla kvikindið er með sortuæxli.
Ísland kom í 11 fréttum áðan. Æsingurinn þarna er orðinn heimsfrægur. Mikið er ég samt fegin að það sé talað um aðeins fleira heldur en þessa helvítis kreppu. Ég fékk til dæmis að vita hvað Obama fékk í morgunmat í morgun. Mjög góð tilbreyting.
Það er pizza King í Herning. Ég ætla ekki að fara í heimsókn. Ég er orðin algjör belgur og það bara gengur ekki lengur hehe. Eini ókosturinn við að búa hjá ömmu: alltaf góður matur. Enda er ég að fara að sauma mér kjól þar sem ég þarf tæpa 2 fermetra af efni:D
Ég er ekki búin að dreypa á bjór síðan ég kom hingað, þótt þetta sé land Tuborgs og hins góða sullsins, en ég mun stíga uppúr þessarri vitleysu von bráðar. 
Danirnir eru búnir að vinna alla sína leiki á HM. Leiðinlegt að Ísland sé ekki með í þessu en mér tókst að koma því fyrir í hausnum á mér að ég ætti að halda með Danmark. Kannski af því að þeir spila í rauðu einsog Ísland stundum? 
Annars er ég mjög sátt með lífið hérna, yfði samt sáttari ef ég ætti sjúklega flotta leðurjakkann sem ég sá í dag en það er víst annað mál. Ætla að segja þetta gott og fara að sofa, lífið er víst ljúfast í Draumalandi.



ADIOS!

Ps. Heiðrún ég bíð eftir að þú bjóðir mér í kaffi og meððí!


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.01.2009 19:59:23 / Aparass

Góður dagur marr?

Jæjaaa.. Ég ákvað að gerast svöl, láta undan þrýstingi og byrja að blogga um það sem á daga mína drífur hér í Danmörku. Eða allavega eitthvað að þeim, svona eins og daga eins og þennan haha. Á þessa líka gömlu "grettis" síðu haha, nenni ekki að gera nýja.

Jæja ég vaknaði klukkan hálf 7 og gerði mig reddí fyrir skólann. Fyrir þá sem ekki vita, þá er ég komin í dönskuskóla í Herning og stunda þar nú nám af miklu kappi haha. Eeeeníveis.. Fór út í góðu skapi og kósý veðri. Ýkt dugleg að taka bus í fyrsta skiptið kl 7 og hann átti að taka mig næstum alla leið á leiðarenda. Smá labb samt, en ég var alveg með það á kristaltæru hvar ég átti að fara út. Skítt með það þótt það væri skítaþoka og drulludimmt, ég er íslendingur ég get allt. Eða það hélt ég... Strætóinn fór aðeins aðra leið en mér hafði verið sagt, en þó í nokkurnveginn sömu átt svo þetta gat ekki orðið mikið mál! jæjaa...ég fór bara út þar sem allir hinir skólakrakkarnir með skólatöskurnar sínar fóru út og byrjaði að labba smá á undan, ég meina ég eldri og svalari en þau! Og glætan að ég hafi spurt bílstjórann hvort þetta væri staðurinn fyrir mig að fara út ef ég væri að fara í Herning Centret (þar sem skólinn er). Jæja...rölti smá...bara þoka...síðan uuh bibliotek? hehe mydtjyllands Kristine friskole?? jahá swømmehall? ókei what Herning skilti??? hvar BÍÍÍB er ég? ahaha á þessu tímabili var þetta pínu gaman og spennandi, var með ipodinn minn og vel klædd í nýju þægilegu Nike skónum mínum og úlpu og húfu. Hvaað með það þótt ég þurfi að labba aðeins auka, hafði alveg hálftíma til að rölta um og finna skólann og það bara gat ekki orðið annað en smá gaman;) Fann meirasegja líkamsræktarstöð sem ég gæti hugsanlega keypt mér kort í. Jæjaa síðan labbaði ég framhjá hverju fyrirtækinu á eftir öðru, helling af bönkum, lögfræðistofu, útfarastofu, kirkju og legstainasölu. Þá fór mér ekki að lítast á blikuna og labbaði til baka. Þið kannski spurjið sjálf ykkur: af hverju hringdi hún ekki í ömmu sína? eða af hverju tók hún ekki næsta strætó? eða af hverju spurði hún ekki til vegar? Ég skal svara þessu gott fólk, ekkert mál! Ég var ekki komin með danskt símkort né inneign á því íslenska svo það var ekki hægt. Næsti strætó hefði getað tekið mig til Þýskalands. Ég spurði hinsvegar til vegar og fékk: uuh ertu á bíl? ég: nei labbandi. Berta bakarísterta: ókei uuh þú labbar út þessa götu ferðsíðantilvinstriframhjámúrsteinshúsitilhægrilabbarþangaðtilþúkemuraðljótuhúsi og ferð þar yfir götuna og spyrð svo næstu bakarísbeyglu hvaða strætó þú átt að taka. Ss ekki mikið um svör þar!
Í stuttu máli var framhaldið leiðinlegt og þunglyndislegt. Labbaði hálfpartinn út úr bænum og meðfram honum á einhverjum ljótum hjólastíg. Búin að hlusta á sama 10 laga playlistann svona 700 sinnum. Ekkert Herning Centret, bara ánægt fólk á hjóli. Næst þegar ég villist, þá villist ég á hjóli!! Jæja...loksins var ég komin til byggða eftir 2 klukkutíma vapp um austurbæ Herning. Fann þar fínasta símaklefa þar sem ég eyddi síðasta klinkinu mínu í að hringja í hana ömmu mína, ískalt á rassgatinu og með rauðara nef en Rúdolf. Fórum beinustu leið í búðina að kaupa símkort haha. Ég allavega bjargaði deginum fyrir ömmu minni, í hvert skipti sem síminn hringir fæ ég upprifjun af afrekum morgunsins. Soldið pínlegt að útskýra fyrir kennaranum mínum af hverju ég kom ekki í morgun, sem betur fer er hann hress gaur og sagði að ég hafi staðist verkefni dagsins. Jæja síðan kíktum við betur á busplanið áðan og sáum að hann skippar þessari einu götu sem ég þurfti að komast á, í hinum enda bæjarins, einu sinni yfir allan daginn. Og það þurfti akkúrat að vera þessi eini tími sem ég þarf að komast í skólann. Þetta bara gæti ekki verið týpískara!! Okei ég veit að ég er að verða 21 árs í næsta mánuði, en það gerir mig því miður ekki betri í að rata frekar en áður. Ég held til dæmis að ég væri ennþá á Viking bar ef Apríl hefði leyft mér að ráða ferðinni á Costa:P
En ég ætla samt að reyna aftur í fyrramálið!! búin að fá upplýsingar um innanbæjarstrætóinn svo þetta ætti að reddast;) annars tek ég hintinu guð. 



Alveg næstum jafn mikill túristi og þessi!!
Kv Sunna


» 8 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 22:56:48 / Aparass

úúúú

NÝ SÍÐA!!! ÞESSI LEGGST Í DVALA!!!

 www.aparassinn.bloggar.is 

Enjoy;D


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 23:09:23 / Aparass

I like to move it, move it...

JJJJIBBÍÍÍ!!! Tölvan mín er komin í lag:D Þurfti bara pabba gamla til að koma og kyssá báttið.. en það eina sem hann þurfti að gera til að apparatið færi í gang var jú að ýta á sama takka og ég er búin að gera síðustu 2 dagana! Af því tilefni ætla ég að blogga ykkur til mikillar gleði ekki satt?:D

Ég hef alltaf talið mig átt frekar úbersýrðar og skrítnar vinkonur (kannski laða ég þetta lið bara að mér ééég veitiggi?) haha allavegana er þetta ekkert að skána!!! Þannig er mál með vexti að Sandra nokkur Hjaltalín og ég vorum að kúkast uppí rúmi eitt skammdegið í HELLI rigningu í einhverju þunglyndis/sýru/hláturs/kúka-kasti þegar alltíeinu vellur uppúr henni Söndru: "Ég var að pojjla (pæla á hennar tungu).. hvar fær himininn allt þetta vatn?" Ég: "Úr skýjunum fávitinn þinn" (ath ég er kúl og nota fáviti óspart á fávita!) Sandra: "En hvernig geta skýjin verið svona blaut??"  Ég: "Ohh Sandra! Hvernig geturu verið svona heimsk??8)"

 

hahaha ég gerði pínulítið of mikið grín af henni svo ég ákvað að gera henni greiða í staðinn;) Segðu svo að ég geri aldrei neitt fyrir þig kúkurinn þinn! Samtal okkar hélt áfram og hljómaði svona...

Sandra: "Ég er ekkert heimsk.. þú ert bara svo gáfuð að ég lít út fyrir að vera heimsk við hliðina á þér!!" Ég: "Já reyndar.. vel mælt! Vá loksins segiru e-ð af viti!" Sandra: "Allt fyrir þig Sunna mín, allt fyrir þig.. en viltu gera mér einn lítinn greiða.. ég er með smá prob:SÉg: "Fer eftir því hvað!" Sandra: "Skoo.. viltu fara til Minneappolis í staðinn fyrir mig? Ég skal þá gefa þér helminginn af laununum mínum í staðinn.. plíííís:)" Ég: "Ohhh Sandra ertu bögg?" Síðan fékk pínu samviskubit:|.. og bætti við "Ókei fyrst þú endilega vilt8)"

*Sandra greyjið með plííís svipinn*

Þarna sjáiði hvað ég er ógó góðhjörtuð manneskja.. gefa mongólítum tækifæri í lífinu;)

# Eeen úr einu yfir í annað.. Peruball á miðvikudaginn og þá hefst djammið að nýju:D Pæling í næstu helgi.. vinna einsog meiníak líkt og síðustu 3 helgar (plús þessa) eða uppí bústað með Selfossskvísunum?;*

*Á maður að þora?*

 

# Úr öðru yfir í eitt.. Myndir fara aaaalveg að hoppa inn.. ætla að reyna að redda því í kvöld eða á morgun. Síðan koma líka fullt eftir helgina;)

# Í síðasta skiptið: DÖKKT EÐA LJÓST?? & STUTT EÐA SÍTT?? :D

Jáá ég veit ekki!!

# Þessi helgi fer í vinnu og chill býst ég við.. kominn tími til að slaka dáldið á! Þaggi Hjördís hehe?:P Chill heima hjá Ingu annað kvöld.. matur, kökur og nammi.. næææs;) fat people haha.. Í kvöld er það pizza og bíó í boði bónusvídjós.

# Ooog ég byrjaði að pæla.. það eru margir sem gera grín af pósunum mínum og segja að ég gretti mig of mikið á myndum.. en af hverju ekki að gretta sig í staðinn fyrir að koma með ömurlegan kúkasvip og þurfa að eyða myndinni? Ég fann lausn á vanda ykkar ljóta fólk.. Grettið ykkur! Þið verðið ekki mikið ljótari;)

 
Takk fyrir samfylgdina;*
 
 
-*Sunna Thaagaard8)

» 9 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 23:41:46 / Aparass

I wanna fuuuck you...you allready know!

Jæjjaaaaaaaaaa... hvað segiði aparassgötin mín:D

Þessi ljóti ógeðslegi kuldi er ríða mér að fullu! Haha já þið heyrðuð rétt.. finn bara ekki fyrir honum núna því hann er með svo lítið typpi! jammjamm.. Helgin var ágæt.. Apríl okkar lét sjást í smettið á sér á miðvikudaginn og heilsuðum við aðeins uppá beygluna þá;):* Á föstudeginum ætluðum við einmitt að taka gott stelpudjamm á þetta.. eeen enduðum með nokkrum löllararúntum og sáum margt skrautlegt fólk:D meðal annars mjööög heitan [FEITAN] gaur með bert á milli fyrir framan BELLY'S;D og einnig desperat Kb banka skrifstofustarfsmann! Sandra joinaði okkur eftir vinnu og það var rúntað til hálf 8 takk fyrir túkall:P Laugardagurinn var tekin í chillinu fram að vinnu.. Hittum Soffíu og Heiðu í krinlunni og svona;) síðan eftir vinnu var sturtað einhverju í sig og skellt sér heim til Aprílar í eitt sorglegasta 4 manna partý sögunnar:D En ég var ekki lengi að fá liðið memmér á rúntinn og hann endaði einmitt svipað og fyrra kvöldið.. nema kannski hálftíma fyrr;) Fokking vinna klukkan 12 á sunnudag.. jééé!

Mikið afskaplega hlakka ég samt andskoti mikið til eftir akkúrat viku!!!  Árangur erfiðis míns skilar sér í peningum LOKSINS:) Þokkalega erfitt að koma sér uppúr rúminu hugsandi til þess að þurfa að fara að vinna í bónusvídjó þegar maður er búinn að sofa í 2-3 tíma!! Vinna næstu helgi og síðan bara moooney:D Sem er mjööög jákvætt því ég hef jú ekki átt pening síðan í sumar!!

Aaanyways... Þið þarna Laugakúkar! Hvernig lýst ykkur á að fá heimsókn af 3 holgóma mongólítum helgina 10-12 nóv eða helgina eftir það?:lol:

Ein pæling: Á ég að verða aftur dökkhærð eða vera bara ljóshærð áfram? Er líka að pæla í að stytta það.. hmm endilega tjáið ykkur:D

Mikið að gera framundan! 2 próf, lööng vinnuhelgi, ritgerð og akkúrat núna: Sooooof! Ætla að enda þetta súra blogg hérna.. og ég læt bíða enn lengri tíma í næsta blogg ef ég fæ ekki nóg af kommentum hérna8)

-*Bæjóóóó!;*


» 15 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 13:34:56 / Aparass

Hæjjjjjjjjj

Jæjaa.. fann svona líka obbóslega skemmtilegt fyrir ykkur til að dunda ykkur við elskurnar mínar Aljört MÖST að svara ef ég veit að þú skoðar síðuna... hinir líka

1. Hvað kallarðu mig?

2. Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?

3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?

4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?

5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?

6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?

7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?

8. Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?

9. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?

10. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?

11. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ?

12. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?

13. Hvernig stráka fíla ég?

14. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?

15. Hvað er mest einkennandi við mig?

16. Hvaða búðir elska ég að fara í?

GOOD LUCK;D

GAMAN AÐ SEGJA FRÁ ÞVÍ AÐ ÞESSI BLESSAÐA SÍÐA ER 2 ÁRA Í DAG


» 12 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 21:19:55 / Aparass

Bleika síða!

Pæling dagsins: Af hverju finnst mér svona ógeðslega gaman að stríða litlu systrum mínum? ég fæ svona í alvöru eitthvað útúr því að misnota mér það að vera fyrirmyndin þeirra!! Þá með því að ljúga  að þeim ýmsu skemmtilegu, auðvitað trúa þær öllu sem ég segi.. Senda þær hingað og þangað t.d útí búð að kaupa kók og láta þeim finnast þær betri manneskjur fyrir vikið.. Kítla þær þangað til þær liggja og grenja, hey! þær báðu um þetta;) Af hverju eeer ég svona vond?

Jú sko.. þegar ég var lítil, var móðursystir mín hún Martha Ann oft að passa mig og eldri litlu systur mína. Hún var eiginlega bara einsog stóra systir mín, enda ekki nema 15 árum eldri en ég. Henni þótti svona rooosalega gaman að ljúga að mér ýmsu til þess að láta mig hætta hinu og þessu... T.d laug hún að mér að ef ég héldi áfram að bora í nefið þá myndi það enda með því að það kæmi risastórt gat upp í gegnum andlitið á mér og puttinn mundi birtast einn daginn útum gat í enninu. Ég trúði þessu! Síðan laug hún líka að ef ég notaði derhúfu svona mikið einsog ég gerði þá myndi ég einn daginn missa allt hárið í einu. Og ég hætti að nota derhúfu! Einnig tróð hún því inní hausinn á mér að Jesús væri kónguló.. ég var nebblinlega skíthrædd við þær og ég trúði á Jesú svo að það gæti ekki verið nema gott. Auðvitað trúði ég henni samt.. henni tókst að telja mér trú um að eldri manneskjur vissu meira en þær yngri og ég sá ekki sólina fyrir henni, svo mikið leit ég upp til hennar svo af hverju ekki? Reyndar trúði ég þessu í mörg mörg ár eftirá.. Þetta gæti verið ástæða þess að ég nýti mér auðtrú litlu systra minna.

Ég var fysta barn foreldra minna, fyrsta barnabarn móðurforeldra minna og einnig föðurmóður minnar og reikniði nú út hvað ég hef hugsanlega fengið mikla athygli þegar ég var lítil! Ókei allavegana þurftu þau ekki að borga fúlgu fjár í ferð í leikhús í höfuðborgina.. nóg að segja bara,, Sunna, dansaðu" Og þá nottla fór ég að dansa sem leiddi til þess að ég datt og fór að hlæja og þá hlógu allir sig máttlausa! Gaman að vera einkabarn;) nema að þegar ég varð 3 ára gömul eignaðist ég litla systur, Steinunni Evu, sem ég dýrkaði og passaði ýkt vel.. eeeen eini gallinn var að hún var svo mikið rassgatarófa að hún þurfti ekki annað en að brosa og þá dýrkuðu hana allir í svona 10 km radíus.. sem leiðir náttúrulega af sér að ég fékk töööluvert minni athygli. Ég græt mig ennþá í svefn. Ég held að það sé ástæðan fyrir að mér finnst gaman að dángla soldið í þær;)

Hitt segir sig sjálft.. ég þurfti að skipta á þeim og svæfa þær útí vagni reglulega.. þær geta alveg gert mér greiða á móti og skroppið útí búð fyrir mig;)

Jæja ég er farin að lesa undir sögupróf.. helvítis próf.. eitt á dag kemur skapinu í lag! Slagorð kennara FÁ. En hey.. síjú leiter;):*


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 23:14:43 / Aparass

Átakanlega skrautleg helgi

Aaaaaaloha.. Svaaaakaleg helgi að baki takk fyrir túkall!

Við Sandra skelltum okkur á hið langþráða road trip dauðans á Lauga um helgina.. Saga að segja frá henni mar.....

  • Lögðum af stað frá Reykjavík 2 klukkustundum eftir áætlun vegna slórs og hámss okkar sjittwalkanna..
  • Hófst hún með viðkomu í Bónus að kaupa 4 snakkpoka, ídífu, bland í áfengið og nammi!! Djös göllar..
  • Löööng ferð sem við gerðum stutta með því að vera við sjálfar (aaafar skemmtilegar sjáðu til) og sungum fallega.. eru til nokkur vídjó af því...
  • Villtumst á milli Akureyrar og Lauga, lentum í rigningu, kolniðamirkri og þoku og þar af leiðandi tók ferðin hátt í 6 klukkutíma í stað 4-5..
  • Lentum á Laugum, hittum stelpurnar;* chilluðum smá og byrjuðum síðan að djamma..
  • Sjallinn á Akureyri varð fyrir valinu og Brain Police var að spila.. ætluðum ekki að stoppa lengi en sökum þess að allir fundu sér eitthvað að dunda sér við héngum við þarna til að hljómsveitin lauk sér af og voru þá nokkur stelpulög voru spiluð.. þá gátum við loksins farið að dansa;)
  • Kvöldið endaði vel hjá flestum.. Sumir reyndar ælandi og voru víst alltíeinu komin uppí árbæ haha, aðrir einum of fullir og dönsuðu berrassaðir uppá vist og steikuðu af sér esið og enn aðrir sváfu útí bíl... skrautlegt kvöld!
  • Laugardagur: ÞYNNKA frá hellllvíti! Say no more...
  • Á laugardagskvöldið var farið í Laugabæ minnir mig að barinn heiti.. Var nú ekki alveg að fýla stemninguna þarna fyrst um sinn en það batnaði nú þegar táin var farin að segja til sín.. sem varð þó að öfgum hjá mér:$ Geggjaður trúbador að spila og já.. það sem ég man frá þessu kvöldi var að ég datt (hélt reyndar að Apríl hefði hrint mér haha) og ég reykti í fyrsta skipti meira en einn smók án þess að kúgast og hósta úr mér lifrin.. versta ákvörðun mín síðan ég ákvað að ég ákvað að gerast meðsek í að pissa á epli og gefa leiðinlega stráknum í næsta húsi! haha jájá nú vitiði að ég gerði það líka:D En já afleiðingarnar voru heldur svæsnar!! Apríl lenti víst í slagsmálum langt frameftir nóttu, Sandra lenti í heitum ástarleikjum langtframeftir nóttu, Dabbi var rosa fullur að eign sögn, Soffía var að vinna og gaf okkur bjór takk dúlla=] haha þetta var ekkert annað en steik! Og sorry Apríl og vinur þinn Johnny að ég kallaði hann hommavin og hitt þarna líka:$ þetta átti bara að vera fyndið:D:*
  • Sunnudagur: Ég hef barasta aaaldrei verið jafnónýt eftir eina helgi!
  • Heimferðin gek heldur hraðar en sú fyrri.. allavegana í mínum augum því ég sofnaði jú í klukkutíma sökum máttleysis og ælutilfinningu!
  • Síðan var komið heim um kvöldið og ég sofnaði um leið og ég lagðist á koddann minn;)

Takk fyrir helgina öll sömul og reynum nú að hlakka til næstu:D Enda ekkert lítið að hlakka til!!! Hallllllloooooooowwwwwwweeeeeeen.........................Stay tuned, myndir á leiðinni;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 15:45:30 / Aparass

Vatnsberinn

Fann þetta á einhverri síðu.. vona bara að það hafi verið í lagi;)

Vatnsberinn er villt vatnastelpa eða strákur. Þetta er fullkomlega ábyrgðarlaust fólk. Þeir hafa einungis eina reglu; ef það er gott, þá gera þeir það. Vatnsberar eru alltaf með flókin og greindarleg plön í gangi sem þeir síðan hlaupa frá án þess að hugsa sig um tvisvar. Þeir segja þér eitt og láta síðan einhverja fáránlega hugmynd teyma þá alveg til Timbúktú. Ekki einu sinni láta þér detta í hug að reyna að fylgja Vatnsbera eftir, þetta er blautt, sleipt og geðveikt lið.

Vatnsberinn stjórnast af Úranus, guði eldinga, rafmagns og hjólreiðamanna.

Hahahaha ég? Neeeeihh:D


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 16:14:59 / Aparass

Ókei krííípí :S

11.9 - Afhverju?

1. Í New York City eru 11 bókstafir

2. Í Afghanistan eru 11 bókstafir

3. Í nafni Ramsin Yuseb (Hryðjuverkamaðurinn sem hótaði að eyðileggja Twin Tower árið 1993) eru 11 bókstafir.

4. Nafnið George W Bush er 11 bókstafir

Þetta gæti allt verið hrein tilviljun, en nú verður þetta áhugavert:

1. New York er 11. fylkið

2. Í flugi 11 voru 92 farþegar (9 + 2 = 11)

3. Í flugi númer 77 sem einnig flaug á tvíburaturnana voru 65 farþegar (6 + 5 = 11)

4.
Árasinn átti sér stað 11. september, sem er einnig þekkt sem 9/11 (9 + 1 + 1 =11)

5. Dagsetningin er eins og neyðarnúmerið í Bandaríkjunum 911 (9 + 1 + 1 = 11)

Ennþá hreinar tilviljanir?? Haltu lestrinum áfram.....

1. Heildarfjöldi fórnarlambanna sem voru í flugvélunum sem notaðar voru í árásunum var 254 (2 + 5 + 4 = 11)

2. 11. september er 254. dagurinn á árinu (2 + 5 + 4 = 11)

3. Hryðjuverkaárásin í Madríd átti sér stað 3.11.2004 (3 + 1 + 1 + 2 + 0 + 0 + 4 = 11)

4. Hryðjuverkaárásin í Madríd átti sér stað 911 dögum eftir árásina á Twin Towers.

... og nú kemur það sem er ennþá merkilegra:

Á eftir fána Bandaríkjanna (Stars and stripes) þá er Örninn þekktasta merki landsins

* Í eftirfarandi versi úr Kóraninum, hinni helgu ritningu Íslam, stendur:

"For it is written that a son of Arabia would awaken a fearsome Eagle.

The wrath of the Eagle would be felt throughout the lands of Allah and

while some of the people trembled in despair still more rejoiced:

For the wrath of the Eagle cleansed the lands of Allah and there was peace."

Þetta er vers númer 9.11 í Kóraninum.

Heldur þú ennþá að um hreinar tilviljanir sé að ræða? Prófaður þá eftirfarandi:

* Farðu í Microsoft Word og gerðu þetta:

1. Skrifaðu með hástöfum: Q33 NY. Flugnúmerið á fyrstu vélinni sem var flogið á tvíburaturnana.

2. Litaðu Q33 NY

3. Breyttu stafastærðinni í 48

4. Breyttu leturgerðinni í WINGDINGS (eða WINGDINGS 1) ÓGNVEKJANDI!!

 

Ég er orðlaus8| enda ég kannski pínu auðtrúa...


» 9 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 00:06:21 / Aparass

Muu

Daginn fólk.. eða jú þið sem lesið þetta.. býst ekki við að margir geri það þar sem þessi síða var að vakna frá dauðum síðan í febrúar. Margt og mikið búið að gerast og breytast síðan þá! En ég er búin að vera að hugsa heiminn á enda.. já ég geri dáldið af því, það er eitt af því sem breytist ekkert:) En þessi hugsun hófst á einföldu skrolli í gegnum þessa síðu.. Las öll gömlu bloggin síðan haustið 2004 þegar við vorum að byrja í FSu. Fokk hvað ég fékk mikinn kjánahroll einhvernveginn.. var eiginlega alveg búin að gleyma hvernig þetta var. Vorum alltaf 7 saman, hlógum saman, átum saman, sváfum saman, töluðum saman á hverjum einasta degi.. Held meirað segja að fólki hafi fundist við vera einum of mikið saman.. vorum nebbla farnar að tala saman á eigin tungumáli með soðnum kartöflum og skokka á hluti:P Saklausari og ánægðari vinahóp var ekki hægt að finna held ég:] Vorum alltaf að finna uppá einhverju ótrúlegu og geðveikislegu, einhverju sem mér mundi ekki detta í hug núna.. og veit ekki um neinn mannlegan sem er líklegur til að gera það heldur.. við vorum klikk:D

Þótt ég sé ýkt ánægð núna með að ég flutti með fjölskyldunni til Reykjavíkur, hafa prófað MH og FÁ og kynnst fullt af krökkum hérna í reykjavíkini og þar af 2 mjög góðum vinkonum:* Þá fór ég að hugsa áðan hvernig þetta væri núna ef ég væri ennþá í FSu. Væri ég á vistinni? Væri ég ennþá að æfa fótbolta? Væri ég búin með fleiri einingar en ég er komin með núna?:P Væru mongo inc ennþá like this? Fólk þroskast reyndar mjög oft í ólíkar áttir og fólk missir samband við gamla vini og eignast nýja o.s.frv. en ef mig minnir rétt, þá held ég að á þessum tíma hefur engin af okkur grunað að við myndum ekki tala saman á hverjum degi enn þann dag í dag:] Bara gaman að pæla í þessu.. haha smá dramakeimur af þessu en mig langaði bara soldið að segjykkur að mér þykir alltaf vænt um ykkur og þótt við séum eiginlega búnar að fjarlægjast allar í sína hvora vinahópana og kynnast fullt af nýju fólki (sem ég uppgötvaði einmitt að væri ekki hættulegt þegar ég flutti) þá finnst mér við samt alltaf vera mongólítar af guðs náð.. veit ekki með ykkur.. hehe ef ekki, þá ókei:] ég er fíbbl!

Þessi færsla var einmitt dáldið úthugsuð áðan hehe: http://www.blog.central.is/a/aparassinn//index.php?page=comments&id=302334

Jæjjjja það er ekki hollt að vera ég og hugsa svona mikið, þótt þetta hafi bara verið sýnishorn af því sem ég var að hugsa! En hey.. farin að lúlla mér.. Mæli með magadans! Þokkalega gaman;) Og já fyrir nokkra nazty little baggas þá fann ég ávísunina frá skattinum:D gaman að því.. góða nótt!


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.09.2006 01:27:46 / Aparass

Gandalagústalagústalagústala....

Jæja veriði öll sæl og blessuð! Ný vertíð er gengin í garð og ég ákvað að blogga:P Haha laaangt síðan ég bloggaði hér.. En yfir í annað!

Skólinn er byrjaður.. Sama prumpið aaaftur og aftur! Ein breyting samt, Sunna litla ætlar að læra í þetta skiptið:D

Apríl Sól yfirgaf pleisið og stakk af með Soffíu Dröfn norður í heimavistarskóla.. meiiiiru kúkalabbarnir:P Við Sandra sitjum eftir djöfulli brókenharted og hjálpum hvor annarri í gegnum magnþrungnu dagana í FÁ:D

Hrafnhildur Canadabúi komin heim.. reyndar dágóður tími síðan en mikið lifandi skelfingar ósköp var gott að fá hana loksins:D Hún situr núna sveitt heima hjá Jóa með dagatalið sitt og brýtur heilann um hvernig hún á að fara að því að hitta mig allar helgar í vetur:D haha rææææt..

Busar: Þeir eru útum aaaaallt! Ég sver það.. helmingurinn af FÁ eru nýnemar og hinn eru skemmtilegar flissandi kellingar að læra sjúkraliðann og gefa litlu gelgjunum ekkert eftir..

Annars er bara allt gott að frétta.. geggjað útá Mallorca, bjargaði geðheilsunni alveg;) Reyndar hefði ég mátt næla mér í aaaðeins meira tan. Kannski maður skelli nokkrum myndum hingað inn við tækifæri.. veit bara ekki hvað ég á eftir að endast lengi með þessa síðu:P

Helgin fer ííí.. það er allt óákveðið enn að ég best veit:) Atburðir síðustu helgar voru of hressir til að nenna að endurtaka strax aftur:D ahahha vááá talandi um geðveiki!! Ég segi að við sleppum svona mikilli ölvun næst=)

Þið þarna Selfossdruslur.. fariði að láta heyra í ykkur! Ég nenni ekki að þurfa að senda leynistalker á ykkur til að vita hvað þið eruð að bralla! haha lovjú;*

Heyrðu já eitt! Langar að kynna ykkur fyrir kærastanum mínum honum Klóka klámkóngi.. nafnið segir sig meir en þúsund orð já:lol:

Erum geggjað happýý:D:*

Jæja prumpusvínið er farið.. Over and out! Sunna;*


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan
Gamlar myndir